Rio Tinto pleased with British Columbia Court of Appeal

Alcan á Íslandi hf. ISAL Straumsvík Pósthólf 244 222 Hafnarfjörður Ísland S + 354 560 7000 F + 354 560 7070 24. febrúar 2009 Áhrif ESB aðildar á ISAL Með bréfi dagsettu 3. febrúar 2009 óskaði nefnd um þróun Evrópumála eftir því að Alcan á Íslandi hf. (ISAL) svaraði því hvernig aðild Íslands að ESB hefði áhrif á hagsmuni fyrirtækisins. Jafnframt hvort fyrirtækið hefði tekið afstöðu til aðildar að ESB. Fyrirtækið hefur ekki mótað afstöðu með eða á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nákvæm úttekt á áhrifum aðildar á hagsmuni fyrirtækisins hefur ekki farið fram en ekki verður séð að hún myndi ráða neinum úrslitum til eða frá. Eftirtalin atriði hafa þó, eða gætu mögulega haft, þýðingu fyrir fyrirtækið: * Alþjóðlegur gjaldmiðill hefði í för með sér aukinn stöðugleika. Þetta á raunar einkum við um Bandaríkjadollar, sem viðskipti fyrirtækisins eru að stórum hluta bundin í. * ESB leggur 4% toll á súrál sem þangað er flutt inn frá löndum utan ESB. Undanþágur eru þó fyrir innflutning frá Jamaica, Surinam og Vestur-Afríku. Súrál er hins vegar tollfrjálst á Íslandi. ISAL kaupir súrál að mestu leyti frá löndum utan ESB, einkum frá Bandaríkjunum. Við aðild Íslands að ESB þyrfti ISAL því að greiða 4% toll af þessari vöru en greiðir engan toll af henni í dag. Ljóst er að þarna yrði um talsverðan viðbótarkostnað að ræða enda er súrál, ásamt raforku, meginhráefni til álframleiðslu. Ólíklegt er að hagkvæmara yrði að kaupa það frá Evrópu, Jamaica eða Surinam, enda er framleiðslan þar dýrari en víðast hvar annars staðar og framtíð hennar raunar í óvissu. * Aðild Íslands að ESB myndi að líkindum engu breyta fyrir ISAL varðandi úthlutun á losunarkvótum vegna losunar gróðurhúsalofttegunda. Varðandi umhverfismál almennt gildir að Ísland innleiðir allar tilskipanir ESB í þeim málaflokki og því myndi innganga í ESB ekki hafa áhrif. * Stór hluti laga og tilskipana ESB um vinnumarkaðinn hefur þegar verið innleiddur hér á landi, svo sem lög um hvíldartíma og um frjáls flæði vinnuafls. Ekki hefur farið fram mat á því hjá ISAL hvaða áhrif þær reglur kynnu að hafa sem ekki hafa verið innleiddar hér og myndu taka gildi við aðild Íslands að ESB. Virðingarfyllst, Ólafur Teitur Guðnason framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi hf. sími: 560 7110 farsími: 856 3535 netfang: olafurg@riotinto.com

Related docs
SAREI V RIO TINTO PLC (02-56256-0)
Views: 29  |  Downloads: 0
Kitimat__British_Columbia
Views: 0  |  Downloads: 0
History_of_British_Columbia
Views: 1  |  Downloads: 0
Rio Tinto Diamonds Launches Design Contest
Views: 1  |  Downloads: 1
Rio Tinto presentation on phase change
Views: 5  |  Downloads: 0
premium docs
Other docs by rolo14
Angel Investing and the Role of ABAN
Views: 845  |  Downloads: 27
United Nations Charter _1945_ - 1
Views: 118  |  Downloads: 0
mathmegic_enter[1]
Views: 894  |  Downloads: 80
The Simple Economics of Open Source
Views: 142  |  Downloads: 2
ade-Davis Bill _1864_ -1[3]
Views: 69  |  Downloads: 0
FORM 720 QUARTERLY FEDERAL EXCISE TAX RETURN
Views: 440  |  Downloads: 3
Form 13615 Volunteer Agreement
Views: 338  |  Downloads: 3
Sample Private Placment Memorandum
Views: 2603  |  Downloads: 439