Embed
Email

BR�F TIL B�NDA

Document Sample
BR�F TIL B�NDA
Shared by: HC111123203427
Categories
Tags
Stats
views:
0
posted:
11/23/2011
language:
Icelandic
pages:
3
BRÉF TIL BÆNDA

Á VESTURLANDI

Útg.: Búnaðarsamtök Vesturlands, Hvanneyri, 311 Borgarnes, s: 437-1215, netfang: bv@bondi.is

Veffang: www. buvest.is Ábyrgðarm: Eiríkur Blöndal ebl@bondi.is

10. bréf, 2005. Nóvember



Námskeið í sauðfjársæðingum

Fyrirhugað er að halda námskeið í sauðfjársæðingum í lok nóvember ef næg þátttaka fæst. Tilkynna

skal þátttöku á skrifstofu í BV s. 437-1215 fyrir 22. nóvember nk.



Hrútar á Sauðfjársæðingastöð Vesturlands 2005 – 2006

Hyrndir hrútar: Kollóttir hrútar:

Túli 98-858 frá Leirhöfn Þokki 01-878 frá Hjarðarfelli

Áll 00-868 frá Hesti Langidalur 01-931 frá Úthlíð

Lóði 00-871 frá Hesti Dímon 01-932 frá Stóru-Mörk 3

Tímon 00-891 frá Gerði Ormur 02-933 frá Heydalsá II

Grímur 01-928 frá Staðarbakka Múkki 03-936 frá Kambi A-Barð.

Hækill 02-906 frá Bjarnastöðum Rússi 03-938 frá St. Fjarðarhorni Strandasýslu

Frosti 02-913 frá Hesti

Týr 02-929 frá Presthólum

Dregill 03-947 frá Hagalandi Þistilfirði

Lubbi 01-940 frá Breiðabólsstað Fellsströnd, Dalasýslu

Gaddur 04-950 frá Hesti

Lundi 03-945 frá Bergsstöðum á Vatnsnesi, V-Hún.

Lási 02-944 frá Bergsstöðum á Vatnsnesi, V-Hún.

Rektor 00-889 frá Kolsholti Villingaholtshreppi.

Tígull 04-939 Forystuhrútur frá Smáhömrum Strandasýslu.



Sauðfjársæðingar 2005

Pantanir á sæði og óskir um notkun einstakra hrúta verða í síðasta lagi að berast fyrir kl. 14:00

síðasta virka dag fyrir sæðingu í síma 437-1215 hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands, fax 437-2015

eða netfang bv@bondi.is. Nauðsynlegt er að a.m.k. tveir hrútar til vara séu einnig nefndir. Ef séð er

að nýting verði léleg á pöntuðu sæði þarf að tilkynna það (sími/tölvupóstur) til skrifstofu BV., fyrir

kl. 9 að morgni sæðingadags svo sæðið geti nýst öðrum.



Útsending sæðis frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands mun byrja 1. desember og standa til 22.

desember, þó ekki laugardaginn 3. og sunnudagana 4., 11. og 18. Eins og fram kemur í

meðfylgjandi skipulagi er boðið upp á sæðingar með fersku sæði í a.m.k. fjóra daga allsstaðar á

þjónustusvæði BV. Á ákveðnum svæðum á Vestfjörðum verður sætt að mestu leyti með djúpfrystu

sæði. Í skipulagstöflu koma fram s.k. frjálsir dagar þann 1. og 2. des. sem er valkostur fyrir alla sem

sæða á eigin vegum. Æskilegt er að þessir dagar verði vel nýttir til að jafna álag seinna á tímabilinu.

Miklar líkur eru á að þessa daga geti bændur fengið nóg sæði úr "óska" hrútunum. Hægt er að panta

ríflega á föstudeginum 2. des. og sæða á laugardagsmorgni með dagsgömlu sæði, ekki má þó vænta

jafn góðs árangurs af því þó oft hafi slíkt lánast vel. BV munu eins og áður verða með

sæðingamenn á sínum vegum á Vesturlandi. Þar sem mikil aukning hefur orðið í að bændur sæði

sjálfir hefur dregið mjög úr störfum sæðingamanna BV og því ólíklegt að þessari þjónustu verði

fram haldið á næstu árum enda hver sæðing þá dýrari og dýrari með hverju árinu. Í ljósi þess er

æskilegt að fjárræktarfélög sjái í framtíðinni um framkvæmd sæðinganna þ.e. útvegi sæðingamann

enda ætti slíkt ekki að verða erfitt þegar margir bændur kunna orðið til verka.

BV munu ekki verða með umsýslu á samstillingarsvömpum og ísetningu þeirra. Þeir sem vilja nota

slíkt á starfssvæðinu verða að snúa sér beint til dýralækna, lærðir sæðingamenn geta einnig séð um

samstillingar, enda hafi þeir leyfi til þess frá viðkomandi héraðsdýralækni.

Reynslan hefur sýnt að sumir hrútar njóta þvílíkra vinsælda að pantanir á sæðisskömmtum úr þeim

geta orðið allt að tvö- eða þrefalt það sem hrúturinn gefur þann daginn. Ljóst er að í slíkum tilfellum

er vonlaust að afgreiða sæði svo öllum líki og er því nauðsynlegt að panta varahrúta eins og áður

var nefnt. Hrútaval á stöðvunum er orðið það gott að skynsamlegt er að dreifa notkun á nokkra

hrúta, sæða jafnvel meira og fá meira úrval. Stundum passa hrútar misvel í hjarðir og því betra að

dreifa notkun af þeirri ástæðu einnig. Vinnureglur á Sauðfjársæðingarstöð Vesturlands eru þær að

þau svæði sem hafa forgang viðkomandi dag njóta forgangs á vinsælustu hrútana í sama hlutfalli og

pantanir viðkomandi svæðis eru í heildarpöntun dagsins. Sæðingamenn eiga að skilja frumrit og

eitt afrit úr sæðingdagbókinni eftir hjá viðkomandi bónda, hann sendir það síðan til BV með

upplýsingum um árangur eftir sauðburð næsta vor.



Dagskipulag sauðfjársæðinga

A = aðaldagar (forgangur að hrútum).

X = aðrir sæðingadagar á viðkomandi svæði á vegum BV.

F = frjálsir dagar, valkostur fyrir alla sem sæða á eigin vegum nema annað sé tilgreint.

Um sæðingar aðra daga en hér eru tilgreindir má semja um sérstaklega.

Í V- og N- Ísafjarðarsýslum verður að stórum hluta sætt með frystu sæði.

Svæði Desember

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22

Mýra- og Borgarfj.sýslur

Sunnan Skarðsheiðar F F A x x x

Skorradalur s.girðingar F F A x x x

Andakíll og Skorradalur n.g F F A x x x

Lundarreykjadalur F F x x x A

Reykholtsdalur F F x A x x

Hálsasveit og Hvítársíðukrókur F F x x A x

Hvítársíða F F x x A x

Stafholtstungur og Þverárhlíð F F x A x x

Borgarhreppur og Norðurárdalur F F x x x A

Álftanes- og Hraunhreppar F F x A x x

Snæfellsnes

Kolbeinsstaðarhreppur F F x A x x x

Eyjahreppur F F x A x x x

Miklaholtshreppur F F x A x x

Staðarsveit og Breiðavík F F x x A x

Eyrarsveit Fróðaárhr/Neshr. F F A x x x

Helgafellssveit og Stykkishólmur F F x x A x

Skógarströnd F F x x x A

Dalasýsla

Hörðudalur F F x A x x x

Miðdalir F F x x x A x

Haukadalur og Laxárdalur s.girð. F F x x x A

Laxárdalur norðan girðingar F F x x x A x

Hvammssveit F F x x x A

Fellsströnd F F x x x A

Skarðsströnd F F A x x x

Saurbær F F x x x A

A- og V-Barðastrandarsýslur

Austur-Barðastrandarsýsla F F x x A x

Vestur-Barðastrandarsýsla F F x A x x



V- og N-Ísafjarðarsýslur

Vestur-Ísafjarðarsýsla F F x A x x

Norður-Ísafjarðarsýsla F F x A x x

Gjaldskrá fyrir sæði og sæðingar verður með tvennum hætti:

1. Sæðingamenn á vegum BV. Innheimt verður gjald fyrir sæði sbr. að neðan auk vinnu skv.

eftirfarandi gjaldskrá, (án vsk):

 Til bænda á starfssvæði BV 2.800 kr./klst.

 Til annarra en bænda (ekki búnaðargjaldsgreiðendur

eða félagsmenn BV) 7.000 kr./klst.

2. Sæði selt beint frá stöð eða hjá sæðingamönnum BV. Aldrei er rukkað fyrir minna en 70% af

pöntuðu sæði. Verð á hverjum skammti er eftirfarandi án vsk:

 Til bænda 350 kr./sk.

 Til annarra en bænda (ekki búnaðargjaldsgreiðendur

eða félagsmenn BV) 875 kr./sk.

 Til bænda, búnaðarfélaga og sauðfjárræktarfélaga

sem annast sjálf pantanir, innheimtu og dreifingu,

lágmark 100 skammtar. 315 kr./sk.

Skila skal sæðingadagbókum til uppgjörs fyrir áramót eða skrá sæðingar í töflu sem er aðgengileg á

heimasíðu BV, www.buvest.is að öðrum kosti reiknast 10 % álag.





Afkvæmarannsóknir

Þeir sem enn eiga eftir að skila upplýsingum vegna afkvæmarannsókna í sauðfé eru hvattir til að

senda þessar upplýsingar sem fyrst.



Búfjáreftirlit – Forðagæsla

Allir bændur ættu að hafa fengið eyðublöð send, og eiga að skila útfylltum blöðum í síðasta lagi

20. nóvember. Listi yfir búfjáreftirlitsaðila fylgdi með í leiðbeiningum til bænda.



Lifandi landbúnaður og sóknarfæri í sveitum

Lifandi landbúnaður og Bændasamtök Íslands standa fyrir fundaherferð um landið frá 10.-23.

nóvember n.k. Á fundunum, sem verða annarsvegar hádegisverðar-fundir (súpa og brauð) og

hinsvegar kvöldfundir (með kaffi og kökum), verður m.a. gerð grein fyrir grasrótarhreyfingunni

Lifandi landbúnaði, möguleikum sem konum í landbúnaði bjóðast vegna þátttöku í verkefninu

“Byggjum brýr” (styrkt af Leonardó starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins) og rætt um

framþróun, nýsköpun, hugmyndabanka, tengslanet o.m.fl. Gert er ráð fyrir að hver fundur taki 1,5

klst með umræðum og erindum frá Ragnhildi Sigurðardóttur verkefnisstjóra Lifandi landbúnaðar,

Árna Jósteinssyni verkefnisstjóra Sóknarfæra til sveita, og heimamanna á hverjum stað. Fundirnir

verða haldnir sem hér segir:



14/11 Holt, Önundarfirði kl. 12:00

14/11 Birkimelur kl. 20:30

15/11 Búðardalur kl. 12:00

15/11 Breiðablik, Eyja-og Miklaholtshrepp kl. 20:30

18/11 Hvanneyri kl 12:00



Þetta verkefni er byggt á óskum grasrótarhreyfingar kvenna og nú skorum við á konur að fjölmenna

á fundina og nýta þetta tækifæri. Jafnframt minnum við á að framþróun, jafnrétti og nýsköpun eiga

að vera viðfangsefni allra bænda og bændur af báðum kynjum eru því hjartanlega velkomnir.



Sveitateiti 2005

Munið sveitateitið 2005 að Laugum í Sælingsdal laugardaginn 12. nóvember.


Related docs
Other docs by HC111123203427
ISAT 615
Views: 0  |  Downloads: 0
Physical Education
Views: 1  |  Downloads: 0
Stat 322 � Day
Views: 0  |  Downloads: 0
PowerPoint Presentation
Views: 0  |  Downloads: 0
Information Theoretic Learning
Views: 1  |  Downloads: 0
B? GI�O D?C V� ��O T?O***
Views: 0  |  Downloads: 0
I N G36
Views: 0  |  Downloads: 0
THE WORLD BANK GROUP
Views: 1  |  Downloads: 0
By registering with docstoc.com you agree to our
privacy policy

You are almost ready to download!

You are almost ready to download!